Á vef Sólmyrkvans 2026 sem Sævar Helgi Bragason heldur úti segir að hægt sé að kaupa sæti í flugi sem bjóði fólki upp á að upplifa lengsta almyrkva á jörðinni. Tvö sæti eru til sölu, annað á 380 þúsund krónur og hitt á 660 þúsund krónur.Verðmunurinn felst í staðsetningu sætanna í vélinni, segir Bandaríkjamaðurinn John Beattie. Hann hefur séð þó nokkra sólmyrkva um borð í flugvélum, allt frá eins hreyfla vélum til stórra Boeing-breiðþota.„Annað sætið er vinstra megin í vélinni, sem er hliðin sem snýr frá sólmyrkvanum. Dýrara sætið snýr beint að sólmyrkvanum,“ segir John Beattie. Þeir sem sitji í ódýrara sætinu verði að gera sér að góðu að horfa yfir öxlina á næsta manni.Sætin séu hverrar krónu virði. FLOGIÐ Í BEINNI LÍNU Í SUÐUR Áætlað er að flugið taki um eina klukkustund og 45 mínútur