Tíu drepnir í loftárás á flutningaskip á Svartahafi

Að minnsta kosti tíu voru drepnir í loftárás Rússa á flutningaskip í Svartahafi undan ströndu úkraínsku borgarinnar Odesa. Rússar hafa sett aukinn kraft í árásir á flutningaskip síðustu vikur. AUKINN ÞUNGI Í ÁRÁSIR Á FLUTNINGASKIP Flutningaskipið Golden Leo sigldi undir fána Gíneu-Bissaú. Úkraínski flugherinn greindi frá því að rússneskar eldflaugar hefðu hæft skipið í gær. Eldur braust út um borð.Leitar- og björgunaraðgerðir hófust í gær og stóðu yfir í nótt. Hafnaryfirvöld í Úkraínu sögðu í morgun að níu úr áhöfn skipsins hefðu verið drepnir auk úkraínsks flugmanns.Stjórnvöld á Indlandi staðfestu síðar að fjórir ríkisborgarar landsins hefðu látist í árásinni. 28 DREPNIR Í ODESA Árásum á Odesa hefur fjölgað síðustu vikur og samkvæmt Oleh Kiper héraðsstjóra hafa 28 verið drepnir í ár
Tíu drepnir í loftárás á flutningaskip á Svartahafi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd