Icelandair hyggst senda flugvél til Gautaborgar í Svíþjóð til að sækja um 170 farþega sem hafa verið strand þar síðan í gær.Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.Flugi Icelandair frá Gautaborg til Keflavíkur var aflýst í gær eftir að bilun kom upp í flugvélinni. Farþegar gistu í Gautaborg í nótt en til stóð að fljúga heim klukkan 18 í dag.Viðgerð vélarinnar tók aftur á móti lengri tíma en við var búist og fluginu aflýst.Fjöldi íslenskra ungmenna er á meðal þeirra sem ekki komust heim eftir að hafa tekið þátt í knattspyrnumótinu Gothia Cup, sem er fyrir börn á aldrinum 11–18 ára.Áætlað er að nýja flugið fari í loftið klukkan 01:20 að sænskum tíma.