„Ég tel að Verkamannaflokkurinn hafi valið Andy Burnham sem næsta forsætisráðherra því hann er talinn hafa einhverja eiginleika sem tengja betur við almenna kjósendur,“ segir Alastair Campbell, stjórnmálaskýrandi og annar af tveimur stjórnendum hlaðvarpsins The Rest is Politics, sem nýtur fádæma vinsælda í Bretlandi og víðar.Campbell var staddur hér á landi í dag til að taka upp viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra fyrir sérstaka útgáfu hlaðvarpsins, þar sem hann og félagi hans, Rory Stewart, ræða við leiðtoga í ýmsum ríkjum.„Burnham er mjög áhugaverður maður; ég hef þekkt hann í langan tíma og hann hefur brennandi áhuga á stjórnmálum og trúir því að það sé hægt að beita þeim til að hjálpa fólki. Hann er búinn að vera borgarstjóri og ráðherra, en ég held að hann geri sér full