Tókst ekki að manna bakvaktir dýralækna

Matvælastofnun hefur enn ekki náð að manna allar bakvaktir dýralækna á Suður- og Vesturlandi í sumar. Þetta kemur fram í tillkynningu á vef Mast.Enginn er á bakvakt á Akranesi, í Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp á morgun og helgina. Einnig eru ómannaðar bakvaktir í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra frá deginum í dag til 10. ágúst.Mast segir að reynt hafi verið að manna allar vaktir.Dýraeigendum sem þurfa á þjónustu dýralæknis að halda er bent á að hafa samband við dýralækna sem hafa áður sinnt dýrum þeirra eða aðra almennt starfandi dýralækna.
Tókst ekki að manna bakvaktir dýralækna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd