Lúsmýið setur mark sitt á sumarfrí landsmanna. Skordýrafælur eru víða uppseldar, kláðabanar og viftur rjúka út og virðist fólk bitið meira en oft áður. Sérstaklega ber mikið á bitnum landsmönnum á Norður- og Austurlandi þar sem veður hefur verið með besta móti.Fjölmargir gestir eru á Hömrum á Akureyri og Hallormsstað á Fljótsdalshéraði.„Það er búið að vera smekkfullt, það eru búin að vera skipti yfir helgina en það er voðalega fljótt að fyllast aftur. Ef veðrið verður svona heldur þetta bara svona áfram,“ segir Sigurjón Lyngdal Benediktsson, tjaldvörður í Hallormsstað. Góð stemning er meðal gesta þrátt fyrir að lúsmý herji á fólk. SKORDÝRAFÆLUR OG BITVARNIR SELJAST UPP Skordýrafæla og bitvörn seldist upp í Lyfju á Egilsstöðum um helgina og mikil sala er í apótekum á Akureyri.„Við erum e