Börn mega ekki vera úti lengur en til miðnættis á sumrin en nýlega hefur skapast umræða á samfélagsmiðlum og spurningin sem virðist brenna á allra vörum er: klukkan hvað börn mega fara aftur út? Lögreglumaður segist sjálfur hafa velt málinu fyrir sér en það fari mjög eftir aðstæðum hvort sett sé athugasemd við einsömul börn á flakki snemma á morgnana.