Líkt og flestir landsmenn vita eru svokallaðar útivistarreglur samkvæmt barnaverndarreglum í gildi hérlendis. Meðal þess sem fram kemur í reglunum er að börn undir tólf ára aldri þurfi að vera komin heim klukkan 22:00 á sumarkvöldum. Umræða hefur nýlega skapast á samfélagsmiðlum sem snýr að því klukkan hvað börn megi svo fara einsömul aftur út á morgnana.