„Þetta augnablik markar tímamót fyrir Bretland og leiðir til stærstu breytinga síðustu 40 ár. Nýtt stjórnmála- og efnahagslíkan,“ sagði Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, í sinni fyrstu ræðu fyrir utan Downing-stræti 10, stuttu eftir að Karl Bretakonungur setti hann formlega í embætti í dag.Burnham var stórorður í ræðunni og sagðist ætla að setja fram áætlun til næstu tíu ára til að breyta bæði breskum stjórnmálum og efnahag. Áætlunin á að koma fram síðar á þessu ári.Fyrsta verkefni hans sem forsætisráðherra yrði að koma í veg fyrir að fólk svæfi úti en heimilisleysi er vaxandi vandamál í Bretlandi. STJÓRNMÁLAMENN EKKI STAÐIÐ SIG NÓGU VEL OG ÞURFI AÐ VERA BETRI Burnham hóf ræðu sína á að minnast á hið augljósa: hann er sjötti forsætisráðherra Bretlands á tíu árum og sá sjöund