Maður sem féll í Ölfusá í gærkvöld er látinn. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook.Lögreglan rannskakar tildrög þess að maðurinn féll í ána.Tilkynnt var um klukkan sjö í gærkvöld að maður hefði fallið í Ölfusá. Lögregla greindi frá því að hann hefði fundist neðar í ánni eftir stutta leit.Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Þyrla Gæslunnar flutti manninn á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík.