Vindmyllurnar umdeildar á Fljótsdalshéraði

Orkusalan vill reisa tvær 160 metra háar vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Fljótsdalshéraði. „Það er ljóst að þessi framkvæmd er umdeild hér á svæðinu,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri í Múlaþingi.Umsagnarferli fyrir umhverfismatsskýrslu lauk í skipulagsgátt stjórnvalda á föstudag.„Okkur finnst ekki hafa verið haft nægilegt samráð við íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Það eru þessir samfélagslegu þættir sem okkur finnst ekki hafa verið greindir nægilega vel í ljósi þess hvar staðsetningin á þessum vindmyllum yrði,“ segir Dagmar.Meirihluti sveitarstjórnar skilaði umsögn um málið. Þar kemur fram að heimastjórn Fjarðarbyggðar leggist gegn vindmyllunum. Hún fer með hlutverk náttúruverndarnefndar.Heimastjórnin ályktar að áformin hefðu mikil neikvæð sjónræn áhrif víða á Fljótsdalshéra
Vindmyllurnar umdeildar á Fljótsdalshéraði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd