Enginn uppfyllti hæfniskröfur á Langanesi

Enginn umsækjandi um starf sveitarstjóra í Langanesbyggð uppfyllti hæfniskröfur. Byggðaráð ætlar að taka sér tíma í að finna rétta manneskju í starfið.Björn S. Lárusson, fyrrverandi sveitarstjóri í Langanesbyggð, fór á eftirlaun 1. júní og staða hans var auglýst. Sex umsóknir bárust.Fjórir drógu umsókn sína til baka fyrir fund byggðaráðs Langanesbyggðar þar sem umsóknirnar voru teknar fyrir. Enginn umsækjenda uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til sveitarstjóra.„Það kom okkur frekar á óvart að fá ekki fleiri umsóknir miðað við hvað er í gangi í kringum okkur en við erum frekar afskekkt. Við erum að kanna að áhuga hjá nokkrum sem sóttu annars staðar á Norðurlandi sem okkur þótti ekki ólíklegir kandídatar. Það verður ákveðið aftur fyrir næstu helgi hvort við auglýsum aftur,“ segir Sigurður
Enginn uppfyllti hæfniskröfur á Langanesi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd