Þyrluáhafnir Landhelgisgæslunnar hafa staðið í ströngu það sem af er júlímánuði og hafa sinnt allt að fjórum útköllum á dag.„Í heild er árið svipað og í fyrra en júlí er aftur á móti búinn að vera annasamur hjá okkur. Við erum búnir að vera í einhverjum 35 útköllum á þyrlum það sem af er júlí á móti um 25 á sama tíma í júlí í fyrra, þannig það er búið að vera svolítið at á okkur undanfarið,“ segir Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Landhelgisgæslunni.Það eru 40% fleiri útköll það sem af er júlí en í fyrra. Auðunn segir að undanfarna daga hafi útköllin verið þrjú til fjögur á dag, en það sé ekkert eitt sem valdi þessu álagi.„Það er ekkert sérstakt sem við sjáum í því, það er bara búið að vera óvenjumikið um sjúkraflug og slys, leitir á landi og slíkt. Þannig það eru eflaust bara margi