Varað við hvassviðri á Breiðamerkursandi

Vegagerðin varar við miklu hvassviðri og sandfoki við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Aðstæður eru alls ekki á færi bíla með aftanívagna, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is.Vegfarendur eru beðnir að kanna ástand áður en lagt er af stað.Einnig hefur orðið vart við bikblæðingar vestan við Jökulsárlón og biður Vegagerðin vegfarendur að aka með gát.
Varað við hvassviðri á Breiðamerkursandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd