Færra ungt fólk býr í foreldrahúsum

Hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hefur lækkað frá því á síðasta ári og hlutfall fullorðinna á leigumarkaði hefur hækkað. Þetta kemur fram í nýrri búsetukönnun HMS.Samkvæmt henni eru um 29% fullorðinna á leigumarkaði í ár miðað við 28% í fyrra. Á vef HMS segir að vísbendingar séu um að ungt fólk hafi í ríkara mæli flutt úr foreldrahúsum og farið á leigumarkað. MINNIHLUTI UNGMENNA Í FORELDRAHÚSUM Um 37% fólks á aldrinum 18 til 24 ára býr nú í foreldrahúsum samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS samanborið við 47% í fyrra. Á sama tíma hækkaði hlutfall fólks í þessum aldurshópi á leigumarkaði úr 34% í 45%.Hlutfall fólks á þessum aldri sem býr í eigin húsnæði lækkaði um eitt prósentustig milli ára, frá 11% í 10%.Meiri breytingar urðu á búsetudreifingu innfæddra ungmenna en aðfluttra. 73 PRÓSE
Færra ungt fólk býr í foreldrahúsum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd