Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn

Maðurinn sem féll í Ölfusá í gærkvöld er látinn. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu á Facebook.Tildrög þess að maðurinn hafnaði í ánni eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.Lögreglu barst tilkynning um klukkan sjö í gærkvöld um að maður hefði fallið í Ölfusá. Í tilkynningu lögreglunnar kom fram að hann hefði fundist neðar í ánni eftir stutta leit og verið bjargað á land.Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík með þyrlu Gæslunnar.Pexels /
Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd