Miklar annir voru hjá lögreglunni í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld og nótt. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir verkefni lögreglu hafa verið óvenjumörg undanfarna daga.Tveir einstaklingar voru handteknir í miðbænum vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Sá sem ráðist var á var fluttur á bráðamóttöku en gerendurnir voru vistaðir í fangaklefum og dúsa þar enn að sögn Guðmundar.Hann kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið sem væri á borði rannsóknardeildar. ÁRÁSIN NÁÐIST Á UPPTÖKU Þá var lögreglan kölluð út að Naustinni á miðnætti, en þar hafði karlmaður ráðist á annan fyrir utan skemmtistaðinn Gaukinn. Árásarmaðurinn flúði vettvang áður en lögreglu bar að garði.Brotaþoli er maður á þrítugsaldri og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.Guðmundur kveðst