Mikil ánægja er með rafmagnsrútur sem rútufyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson á Selfossi hefur fest kaup á. Nýlega voru nýju rafmagnsrúturnar til sýnis fyrir gesti og gangandi og höfðu gestir ánægju af að fagna þessum áfanga í sögu fyrirtækisins, 15 nýjum rafmagnsrútum í öllum stærðum.Fyrirtækið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki stofnað 1969. Guðmundur Tyrfingsson er sjálfur enn við störf hjá fyrirtækinu rúmlega níræður.„Þetta eru rútur sem fara í alls konar verkefni hjá okkur. Sumar fara í Reykjanesbæ, einhverjar fyrir Vegagerðina og einhverjar í hópferðir. Þannig að þetta er bara svona sambland af alls konar stærðum og gerðum, sem fara í ýmis verkefni,” segir Tyrfingur Guðmundsson framkvæmdastjóri GTS.Hvað draga þær langt, hvað er hægt að keyra þær lengi?„Það er svolítið misjafnt eftir stærð