Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum

Þrettán ára drengur lést og fjöldi fólks slasaðist í fagnaðarlátum á Spáni eftir að Spánverjar sigruðu í úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gærkvöld.Gosbrunnur hrundi í borginni Ciudad Rodrigo í vesturhluta landsins rétt eftir miðnætti, Fjöldi fólks varð undir og drengurinn týndi lífi.„Það sem átti að vera fögnuður vegna spænska liðsins á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu breyttist í harmleik,“ stendur í færslu á Facebook-síðu sveitarfélagsins þar sem bæjarstjórnin í Ciudad Rodrigo vottar samúð sína.Neyðarþjónustu í borginni bárust símtöl vegna gosbrunnsins rétt upp úr klukkan hálfeitt. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést.Gosbrunnurinn hrundi undan þunga fólks sem klifraði upp á hann í fagnaðarlátunum að því er spænskir miðlar greina frá.
Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd