Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt áform um breytingar á lögum um dómstóla í Samráðsgátt. Eina atriðið sem til stendur að breyta snýr að staðsetningu Landsréttar, sem er til húsa í Kópavogi. Millidómstigið Landsréttur varð til með lögum sem tóku gildi 1. janúar 2018. Samkvæmt þeim skal Landsréttur staðsettur í Reykjavík. „Þegar dómstóllinn tók til starfa var ekki til staðar húsnæði í Reykjavík...