Ekkert lát virðist vera á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 37 létu lífið á laugardaginn, sem er með því mesta frá því faraldurinn hófst. Í heildina hafa að minnsta kosti 930 dáið í Austur-Kongó eftir að hafa smitast af ebólu, svo vitað sé, en 2.344 hafa greinst smitaðir.