Vill að Judit Polgar verði forseti

Judit Polgar, stórmeistari í skák, gæti orðið næsti forseti Ungverjalands. Peter Magyar, forsætisráðherra landsins, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að hún gæti orðið forseti sem sameinaði alla Ungverja og leiðtogi sem þeir gætu verið stoltir af. Magyar ætlar að ræða við Polgar á morgun um hvort hún sé reiðubúin að verða forseti. Polgar var stigahæst allra kvenna í skák í 26 ár, allt þar til hún hætti að tefla 2014 og eina konan til að komast á lista yfir tíu stigahæstu skákmenn óháð kyni. Polgar keppti um skeið undir merkjum Taflfélags Reykjavíkur.Tamas Sulyok, fyrrverandi forseti, lét af völdum vegna stjórnarskrárbreytingar sem nýir ráðamenn beittu sér fyrir. Sulyok var bandamaður Viktors Orbans, fyrrverandi forseta.
Vill að Judit Polgar verði forseti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd