Þrettán ára drengur lét lífið og fjöldi fólks slasaðist í fagnaðarlátum á Spáni vegna sigurs Spánverja á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gærkvöld.Gosbrunnur hrundi í borginni Ciudad Rodrigo í vesturhluta landsins skömmu eftir miðnætti á staðartíma. Fjöldi fólks varð undir og drengurinn týndi lífi.„Það sem átti að vera fögnuður vegna spænska liðsins á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu breyttist í harmleik,“ skrifaði sveitarfélagið í færslu á Facebook þar sem bæjarstjórn Ciudad Rodrigo vottar samúð sína.Neyðarþjónustu í borginni bárust símtöl vegna gosbrunnsins rétt upp úr klukkan hálf eitt. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést.Gosbrunnurinn hrundi undan þunga fólks sem klifraði upp á hann í fagnaðarlátunum, að því er spænskir miðlar greina frá.