Árásir níundu nóttina í röð

Bandaríski herinn gerði miklar árásir á hernaðarlega innviði í Íran í nótt. Þetta er níunda nóttin í röð sem Íranar og Bandaríkjamenn gera árásir á skotmörk í Mið-Austurlöndum.Í fréttatilkynningu bandaríska hersins, segir að árásirnar í nótt hafi beinst gegn stjórnstöðvum íranska hersins og hernaðarmannvirkjum. Íranski fjölmiðillinn Tasnim segir að sprengingar hafi heyrst á nokkrum stöðum í landinu.Íranski byltingarvörðurinn segist hafa ráðist á bandarísk skotmörk í Kúveit í nótt. Í yfirlýsingu hersins á ríkisfjölmiðli Írana kom fram að árás hafi verið gerð á ratsjárkerfi og hergögn og drónaskýli á Ali Al Salem flugherstöðinni. Íranski herinn gerði einnig flugskeytaárásir á Aqaba-flugvöllinn í Jórdaníu.Bandarískur hermaður féll í sprengingu sem varð þegar verið var að sprengja íranskan dró
Árásir níundu nóttina í röð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd