Mynt sem talin er vera frá tíma Ólafs kyrra Noregskonungs (1067–1093) fannst á öðrum degi uppgraftar á verbúðaminjum í Hafnabúðum á Skaga í síðustu viku. Myntin er sú fyrsta sem finnst við uppgröftinn og svo best er vitað sú fyrsta sem finnst í verstöð frá þessum tíma hér á landi.