Fyrrverandi utanríkisráðherrar Íslands hafa rætt við Morgunblaðið og mbl.is eftir að hollensk stjórnvöld vísuðu því á bug að Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, hefði sagt íslenskum stjórnvöldum að Ísland gæti fengið undanþágur, sérlausnir eða varanlega undanþágu frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur að undanförnu haldið fram.