Alvarleg hnífaárás í 101

Tveir voru handteknir í hverfi 101 í vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hnífi var beitt, segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en ekki kemur fram hvenær árásin var gerð. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku og árásarmenn voru vistaðir í fangaklefum. Ekki liggur fyrir hvernig líðan árásarþola er.Annar einstaklingur var fluttur á slysadeild eftir líkamsárás fyrir utan skemmtistað í sama hverfi. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi. Einn var handtekinn vegna vopnalagabrots og vörslu og meðferðar fíkniefna, einnig í hverfi 101. Sá var í mjög annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu og var fluttur á bráðamóttökuna.Þá var ekið á ökumann á rafmagnshlaupahjóli sem hlaut minniháttar meiðsli. Sá er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis á rafhlaupahjólinu.
Alvarleg hnífaárás í 101

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd