Varaforsetahjónin eignuðust son

Varaforsetahjónin á Mæðradegi hermanna í Hvíta húsinu 6. maí sl.EPA / YURI GRIPAS / POOLVaraforseti Bandaríkjanna JD Vance og eiginkona hans Usha Vance eignuðust dreng í gær. Þetta er fjórða barn hjónanna en fyrir eiga þau tvo drengi og eina stúlku sem eru öll undir tíu ára aldri.Þetta er í fyrsta sinn í yfir 150 ár sem varaforseti Bandaríkjanna eignast barn í embætti. Vance hefur margoft og við hin ýmsu tilefni hvatt Bandaríkjamenn til að eignast fleiri börn.
Varaforsetahjónin eignuðust son

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd