Ferju með yfir eitt hundrað um borð hvolfdi í Guyana

Ferju með yfir eitt hundrað manns um borð hvolfdi fyrir utan strönd Guyana á laugardagskvöld. Að minnsta kosti 67 hefur verið bjargað en enn stendur leit yfir að hinum sem voru um borð.Fyrst var talið að 116 farþegar og 17 í áhöfn ferjunnar hefðu verið um borð í ferjunni. Yfirvöld hafa nú greint frá því að farþegalistinn hafi ekki verið réttur og því gæti fjöldi farþega og áhafnar verið enn meiri.Ferjan sigldi frá höfuðborginni Georgetown til Port Kaituma síðdegis á laugardag og neyðarkall barst frá ferjunni um átta klukkustundum síðar. Ráðherra opinberra framkvæmda, Juan Edghill, sagði í færslu á samfélagsmiðlum að fyrstu upplýsingar bendi til að stór alda hafi hvolft ferjunniSlysið er sagt vera mikið áfall fyrir þessa fámennu þjóð en um ein milljón manns búa í landinu.
Ferju með yfir eitt hundrað um borð hvolfdi í Guyana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd