Uppboð á landsliðsbúningum og fleiri hlutum til styrktar íbúum í Drammen

Norska knattspyrnusambandið ætlar að standa fyrir uppboði á ýmsum hlutum tengdum nýafstöðnu heimsmeistaramóti í fótbolta til stuðnings þeim sem urðu fyrir tjóni í brunanum í Drammen. Norska ríkisútvarpið greinir frá uppboðinu.Í tilkynningu á vefsíðu norska knattspyrnusambandsins kemur fram að sambandið vilji leggja sitt af mörkum með uppboðinu og styðja við íbúa sem urðu fyrir tjóni í Drammen. Það fé sem safnast verður látið renna óskert til Drammen-sveitarfélagsins sem mun ráðstafa fénu þannig að það nýtist þeim sem á þurfa að halda.Meðal þess sem verður á uppboðinu er ljósmynd af landsliðinu í víkingaklæðum en hver mynd er metin á um 100.000 norskar krónur eða um 1,3 milljónir íslenskra króna. Aðeins hundrað ljósmyndir eru í boði og verða þær númeraðar og áritaðar af ljósmyndaranum.Rauð
Uppboð á landsliðsbúningum og fleiri hlutum til styrktar íbúum í Drammen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd