150 íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda

Sumarið hefur verið annasamt hjá slökkviliðsmönnum í Frakklandi. Þessir börðust við skógarelda í Fontainebleau-skóginum suður af Parísarborg 13. júlí sl.EPA / GAUTHIER BEDRIGNANSYfir 600 slökkviliðsmenn börðust við skógarelda í suður Frakklandi í gær en tíu heimili urðu eldinum að bráð og tjón varð á níu til viðbótar. Einn slökkviliðsmaður slasaðist í aðgerðunum, þó ekki alvarlega.Um 150 íbúar í tveimur bæjum í sveitarfélaginu Var í Provence-Alpes-Côte d'Azur-héraði þurftu að yfirgefa heimili sín í gær vegna skógareldanna sem enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum á. Gróður á svæðinu er mjög þurr og eldurinn breiddist hratt út en mikill og heitur vindur var á svæðinu þegar eldurinn kom upp.Hitinn fór upp í 40 gráður á celsíus í gær og appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir mánudag vegna
150 íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd