Stöku ferðamenn leita lunda í Látrabjargi þegar sexhjól og örfáir jeppar þræða löturhægt hálfósýnilega slóða fram á brún þessa mesta fuglabjargs landsins. Í nokkra daga á vorin mega landeigendur nota þessa annars friðlýstu slóða til að koma fyrir heimasmíðuðum sigbúnaði sínum. Það er spenningur og eggjahljóð í mannskapnum, greinileg veisla fram undan. „Þetta er náttúrlega viss geðveiki. Maður þarf að...