Lögreglu barst tilkynning um klukkan sjö í kvöld um að einstaklingur hefði fallið í Ölfusá. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook kemur fram að viðkomandi hafi fundist neðar í ánni eftir stutta leit og var bjargað á land.Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Einstaklingurinn var fluttur á neyðarmóttöku Landspítala háskólasjúkrahúss í Reykjavík með þyrlu gæslunnar.Ekki verða veittar frekari upplýsingar um líðan viðkomandi.Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu lögreglunnar.RÚV / Arnar Halldórsson