Spánverjar unnu Argentínu 1-0 í úrslitaleik HM karla í fótbolta 2026. Þeir eru því heimsmeistarar í annað sinn í sögunni en hinn titillinn kom 2010.Markalaust var eftir 90 mínútur sem og eftir fyrri hálfleik framlengingar. Seinni hálfleikur hennar var nýhafinn þegar Spánverjar brutu loks ísinn. Nico Williams skallaði þá fyrirgjöf beint fyrir fætur Ferran Torres sem þrumaði boltanum í netið.Argentínumenn sköpuðu sér sitt eina alvöru færi stuttu seinna en náðu ekki að jafna og Spánn vann 1-0.Hér má sjá allt það helsta úr leiknum.