Ævintýrafólkið Haukur Sigurðsson og Vaida Bražiūnaitė kynntust í Noregi en fluttu svo vestur á firði og hófu búskap sinn í mongólsku tjaldi sem kallast jurta. Í dag búa þau í ævafornu húsi í miðbæ Ísafjarðar sem langalangalangamma og langalangalangafi Hauks byggðu.