Lögreglu barst um klukkan sjö í kvöld tilkynning um að einstaklingur hefði fallið í Ölfusá.Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi.Leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.RÚV / Arnar Halldórsson