Líkamsleifar karlmanns sem slökkviliðsmenn á landbúnaðarsvæði í Salerno-héraði á Suður-Ítalíu fundu á dögunum reyndust vera af íþróttafréttamanni úr héraðinu. Saksóknarar telja manninum hafa verið ráðinn bani.Slökkviliðsmenn fundu líkið þegar þeir voru að vinna að því að ráða niðurlögum elds á landbúnaðarsvæði í sveitarfélaginu Eboli í Kampaníu.Síðar kom í ljós að hinn látni var Luigi Esposito, fimmtíu og þriggja ára gamall íþróttafréttamaður.Þetta kemur fram í yfirlýsingu Raffaele Cantone, saksóknara í Salerno. Hann segir fyrstu niðurstöður rannsóknar lögreglu benda til þess að Esposito hafi verið myrtur. ÁSTÆÐA MORÐSINS ENN Á HULDU Landsamtök ítalskra blaðamanna staðfestu að Esposito hafði verið skráður blaðamaður. Hann fjallaði um íþróttir fyrir ýmsa staðbundna fjölmiðla, meðal annar