Rússneskur stjórnarandstæðingur var í síðustu vikur settur á lista yfir erlenda erindreka og dæmdur til greiðslu sektar. Hann hugðist bjóða sig fram í þingkosningum í september en fær það ekki.Frambjóðandinn heitir Boris Nadezdin. Eftirnafn hans er dregið af orðinu „nadezda“ sem þýðir von og því þótti það táknrænt að hann ætlaði að reyna að bjóða sig fram og vekja von um betri tíð. Svo verður þó ekki því Nadezdin hlaut dóm á föstudag. Það þýðir að hann megi ekki bjóða sig fram.Dóminn hlaut hann fyrir að hafa árið 2023 birt mynd af öðrum stjórnarandstæðingi, Alexei Navalny, á samfélagsmiðlum. Nadezdin þarf að borga sekt sem jafngildir um 1.700 íslenskum krónum. Stuðningsmenn hans fjölmenntu í dómsal á föstudag. „Ég er nokkuð hress af því að helstu niðurstöður dómsins voru að ég er enn á líf