Gömlu lýsistankarnir á Raufarhöfn eru að verða tilbúnir fyrir listsýningar. Einstakur hljómgrunnur er í tönkunum þar sem endurbætur hafa staðið yfir í nokkur ár.„Lýsistankarnir sem voru byggðir 1938-40 og voru í notkun til 2005, að ég held frekar en 2003 fyrir lýsi, það er verið að breyta þeim í listatanka,“ segir Ásdís Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður á Raufarhöfn.Hugmyndin kviknaði 2021 og ef allt gengur eftir verða til tvö glæsileg rými fyrir ýmsar listsýningar. Framkvæmdir ganga hægt en örugglega enda mikið verk. Fjármagn kemur frá innviðaráðuneytinu og ætti að duga til að ljúka endurbótum.„Það var ég sem óvart spurði, hvað á að gera við lýsistankana. Já, og fartölvan, þá sækirðu um þarna og þarna, áður en ég vissi af var ég kominn með tvo lýsistanka á mína ábyrgð. Þannig gerðist þetta