Tilkynnt var um „óvelkominn aðila“ í Hlíðahverfi Reykjavíkur, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið var leyst með því að lögregla skipaði manninum að hafa sig á brott. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað og innbrot miðsvæðis í borginni og er málið í rannsókn.