Falleg skógarbelti, lyngmóar og melar í kringum Breiðholtið eru skemmtileg leiksvæði. Sömuleiðis Elliðaárdalurinn fyrir ofan stíflu. Fuglalíf þar er fjölbreytt. Suma fugla ber oft fyrir augu eins og stokkönd, hettumáf og grágæs.Aðrir fuglar eru ekki eins sýnilegir og mikil fyrirhöfn er að koma auga á þá. Eyruglur eru í þeim hópi.Ásta Magnúsdóttir áhugaljósmyndari hefur haft sérlegan áhuga á uglum í meira en áratug og leitar þær víða uppi. Hún hafði frétt af ugluhreiðri og hóf leit. Heppnin var með henni 17. júlí þegar hún náði myndbandi af eyrugluunga á grein.Unginn virtist forvitinn mjög og með, að því er virtist, alveg liðamótalausan háls.Eyrugluunginn á þrjú systkini og komu þau öll úr eggjum sínum fyrr í sumar eða vor í skóginum milli Elliðaá og Hólahverfis.Eyruglur hafa orpið á Ísland