Þúsundir komu saman í Kyiv í gærkvöld og mótmæltu brottvikningu varnarmálaráðherrans Mykhailo Fedorov úr embætti. Þetta var þriðja kvöldið í röð sem efnt er til fjölmennra mótmæla í landinu vegna uppstokkunar í ríkisstjórn í síðustu viku.Mótmælendur krefjast þess að hætt verði við að vísa Fedorov úr embætti varnarmálaráðherra. Hann hefur notið mikilla vinsælda og margir sem þakka honum betra gengi í stríðinu við Rússa með langdrægum árásum á olíuinnviði. Þá hefur hann barist gegn spillingu í hernum og samdi um aðgang úkraínskra hermanna að Starlink-gervihnattakerfinu.Samband Fedarovs við hershöfðingja Úkraínu, Oleksandr Syrský, var stirt og er það talin ástæða þess að Zelensky vék honum úr ríkisstjórninni. Meðal krafna mótmælenda í gær var að Syrský yrði látinn fara. Ekki var aðeins mótmæl