Bílvelta í Skötufirði

Bíll valt utan vegar í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á ellefta tímanum í dag. Þrír voru um borð í bílnum og voru þeir fluttir á sjúkrahús á Ísafirði til aðhlynningar. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn segir að ekki sé vitað hversu alvarlegt slysið er. Aðstæður á veginum voru góðar.RUV / Loftmyndir
Bílvelta í Skötufirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd