Of mikill tími kennara fer í að búa til námsefni í stærðfræði þar sem námsgögn í greininni eru úr sér gengin og ljóst er að bregðast þarf við. Þetta segir formaður félags framhaldsskólakennara en samkvæmt nýrri könnun mennta-og barnamálaráðuneytisins telur enginn kennari stöðu nýnema góða í stærðfræði.