Landsbankinn hefur enn aðsetur í gamla bankahúsinu á Raufarhöfn sem nú er kallað Ráðhúsið. Þar er einnig pósthús bæjarins og skrifstofa starfsmanna samtakanna og Norðurþings.„Við höfum verið hér starfandi í þessu húsi í þó nokkur ár. Hér er samsuða af alls konar stofnunum og það var bara kominn tími á ýmislegt,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, starfsmaður SSNE á Raufarhöfn. Miklar endurbætur hafa staðið yfir og búið er að tryggja fjármagn til að ljúka framkvæmdum með styrk frá Stefnumótandi byggðaáætlunum.„Það er, svo lengi sem við förum ekki fram úr áætlunum, já. Sveitarfélagið leggur til mótframlag og er að vinna í endurbótum á húsinu sjálfu líka,“ segir Nanna. FRÁBÆRT FYRIR STÖRF ÁN STAÐSETNINGA Markmiðið er að útbúa aðstöðu fyrir störf án staðsetningar til að laða fólk til Raufar