Tónleikum Bad Bunny á Ítalíu aflýst vegna hagléls

Hljómleikum púertóríska tónlistarmannsins Bad Bunny í Mílanó á Ítalíu í gærkvöldi var skyndilega aflýst þegar brast á með hagléli.Uppselt var á tónleika stórstjörnunnar í Ippodromo SNAI La Maura-tónleikahöllinni í Mílanó, sem tekur 80 þúsund gesti.Þegar um 45 mínútur voru liðnar á tónleikana tók veður að versna og hlé gert á tónleikunum. Tónleikagestir voru fyrst um sinn beðnir að halda kyrru fyrir á meðan veðrið gengi yfir, en fljótlega varð ljóst að svo yrði ekki og var ákveðið að rýma tónleikahöllina.Tónleikagestir hafa deilt upplifun sinni á samfélagsmiðlum. > @therealalismartini L’apocalisse a Milano 🌪️⛈️ ♬ original sound - therealalis > @itsericagal The second Milan Bad Bunny concert was shut down cause of the weather 😭 @Bad Bunny #badbunny #milano #dtmf #concert #storm ♬ NUEVAYoL
Tónleikum Bad Bunny á Ítalíu aflýst vegna hagléls

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd