Hæð sem stjórnar veðri haggast ekki næstu daga

Veður verður með svipuðum hætti fram í miðja viku samkvæmt pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Öflug hæð haggast ekki að ráði og heldur áfram að beina til okkar vestlægri átt með vætu vestanlands en björtu og hlýju veðri fyrir austan:Öflug hæð suður af landinu mun ekki haggast að ráði næstu daga og því verður svipað veður áfram, þ.e. ríkjandi vestlæg átt með dálitla vætu af og til vestanlands og hita yfirleitt á bilinu 10 til 15 stig, en lengst af bjart veður fyrir austan þar sem hiti fervíða vel yfir 20 stig.Hæðin sér um að dæla til okkar mjög röku og hlýju lofti sem á rætur sínar að rekja langt suður í hafi. Um miðja næstu viku er útlit fyrir að hæðin fari að þokast til suðurs og þá ætti staðan loksins að breytast hjá okkur.
Hæð sem stjórnar veðri haggast ekki næstu daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd