Búið er að slökkva eldinn í byggðinni í Drammen

Búið er að ráða niðurlögum eldsins í byggðinni í Drammen í Noregi og ekkert slökkvistarf var þar í nótt.Í frétt norska ríkisútvarpsins segir að slökkviliðsmenn séu þó enn á vakt til að koma í veg fyrir að eldurinn blossi upp að nýju. Svalt og blautt veður hefur haft jákvæð áhrif á slökkvistarfið og slökkviliðið segir að búið sé að ná stjórn á eldinum. Eldar loga þó enn í skóginum og verður slökkvistarfi haldið áfram þar í dag.Yfir hundrað heimili eru talin gjörónýt eftir brunann og fleiri hundruð manns misstu heimili sín. Þá þurftu yfir fjögur hundruð manns að yfirgefa heimili sín vegna brunans.Eldsupptök eru ókunn. Slökkviliðið veit hvar upptök eldsins voru og það verður litið til þess og fleiri þátta við rannsókn málsins.Ýmsar kenningar hafa sprottið upp á samfélagsmiðlum um eldsupptökin
Búið er að slökkva eldinn í byggðinni í Drammen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd