Ein stærsta flugskeytaárásin á Kyiv fram til þessa

Einn var drepinn og 13 særðust í árásum rússneska hersins á sex hverfi í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt.Háværar sprengingar heyrðust víða um borgina en úkraínski flugherinn varaði íbúa við því í gærkvöld að Rússar hefðu skotið langdrægum flugskeytum á borgina. The Guardian segir að alls hafi 40 langdrægum flugskeytum var skotið á borgina. Þetta er ein stærsta flugskeytaárás sem Rússar hafa gert á borgina til þessa.Úkraínski herinn gerði árásir á vöruhús netverslunarinnar Wildberries í Kotovsk og Elektrostal í gærnótt. Sjö voru drepnir og 25 særðust í árásunum.Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu sagði í færslu á X í gær að vöruhúsin væru notuð af rússneska hernum til að útvega sér íhluti sem væru undir viðskiptaþvingunum fyrir drónaframleiðslu og leiðsögutæki.
Ein stærsta flugskeytaárásin á Kyiv fram til þessa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd