Umdeildur áhrifavaldur, Andrew Tate, og bróðir hans, Tristan Tate, voru handteknir í Miami í gær. Bresk yfirvöld létu handtaka þá vegna kynferðisbrota, mansals og fleiri brota sem þeir eru grunaðir um á árunum 2010 til 2017 og hafa óskað eftir því að þeir verði framseldir til Bretlands.Bræðurnir eru ákærðir fyrir nauðganir, kynferðisbrot, mansal og barnaklám. Þetta eru nýjar ákærur á bræðurna og bætast við eldri ákærur en ríkissaksóknari í Bretlandi gaf út ákæru í 21 lið á hendur bræðrunum á síðasta ári.Lögregluyfirvöld segja þolendur þeirra vera samtals sjö talsins. Bræðurnir eru einnig ákærðir fyrir skattsvik og peningaþvætti í Bretlandi.Bræðurnir hafa ávallt neitað sök. Lögfræðingur þeirra sagðist vongóður um að þeim yrði sleppt úr varðhaldi í Bandaríkjunum þegar dómari væri búinn að fa